Fyrir tveim vikum síðan gerðist sá merki atburður að Viðar nokkur Guðmundsson eignaðist litla stúlku. Hún vó 10 merku (frekar lítil) og um 48 cm að lengd.
Fæðingin gekk mjög vel og endaði með stæl 23:16 mánudaginn 4. feb. Því miður kom svo smá bakslag daginn eftir þar sem einhver stífla myndaðist í endaþarminum sem varð til þess að hún gat ekki losað sig við úrgang. Þetta uppgötvaðist ekki fyrr en um 14 daginn eftir og voru þarmarnir þá mjög þandir og voru menn jafnvel farnir að hafa áhyggjur af því að hún þyrfti að fara í aðgerð. Hún var lögð í hitakassa inn á vökudeild þar sem hún lá með vökva í æð og sondu (slanga sem liggur úr nefinu í magann en þar fékk hún mjólk ef hún vildi ekki drekka hana venjulega, sem gekk illa í byrjun). Sem betur fer náðu læknarnir að losa um stífluna og náði hún að losa sig við fyrsta kúkinn og er skemmst frá því að segja að hún hefur ekki hætt að kúka síðan.....
Við vorum samt í eina viku inn á vökudeild þar sem hún var undir ströngu eftirliti en sem betur fer hefur allt legið upp á við. Núna erum við komin heim, stelpan tekur vel brjóstið og vex og dafnar. Ekki skemmir fyrir að hún er mjög vær og góð og alveg einstaklega gott eintak

Hér sjáið þið sonduna (græna slangan) og vökvann í æð (vafið um hendina)

Aðeins nokkurra klst. gömul
Kveðja,
Woody